( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Líkami fyrir Lífið » Þjálfunaráætlunin » Taka af skarið
Föstudagur, 18 maí 2012

Taka af skarið

Það er búið að bjóða ykkur vegleg verðlaun og segja ykkur hvernig á að fara að þessu. Ætli þið að gera þetta? Eða ætli þið að gefast upp fyrir lífstíð?

 
Þegar maður er 20-30 kg of þungur er maður ekki lifandi heldur deyjandi.
Við vitum að slæmir ávanar búa með manni ævilangt. Þeir hverfa aldrei. Þeir bíða ávallt handan við hornið, lymskulegir og fylgjast með manni.
 
Láttu engan segja þér að þú getir þetta ekki. Þú getur þetta. Það er undir þér komið. Taktu ákvörðunina og fylgdu henni eftir.  Það eru svo margir sem halda að þeir séu of feitir, of slappir eða of gamlir til að koma sér í form. Það er til fólk sem heldur að allir í líkamsræktinni séu í toppformi. Það er einfaldlega ekki satt. Hver og einn sem er í líkamsræktinni varð að byrja á byrjuninni eins og allir aðrir.
 
Það skiptir ekki máli hver þú ert eða hvað þú gerir, þú býrð algjörlega yfir þeim jákvæða krafti sem þarf til að breytast. Læknar fylgja áætlunninni Líkami-fyrir-lífið til að lækka blóðfitu, draga úr hættu á hjartasjúkdómum, til að snúa við rás tímans, jafnvel til að vinna upp áralanga vanrækslu í líkamsrækt, á aðeins 12 vikum. Ímyndaðu þér að auki hvernig verður að vakna upp á hverjum morgni og líta í spegilinn og verða beinlínis spenntur yfir því sem þú sérð. Þú getur þetta. Það skiptir ekki máli hvort þú ert 22 ára eða 62 ára, karl eða kona, vel á þig kominn eða ekki. Án tillit til hver þú ert, þá heitum við þér þessu: Þú hefur getuna til að breytast.
 
Líkami þinn er miðja heims þíns. Þú kemst ekkert án hans, hann er musteri huga þíns og sálar. Ef hann er slappur, linur og eldist hratt fylgja aðrar hliðar á lífi þínu fljótlega í kjölfarið. Það setur enginn sér það markmið að vera feitur og óheilbrigður. Það sem gerist er að einhvers staðar á leiðinni, hægt og sígandi, án þess að vita af því gefumst við upp.
 
  • Taktu ákvörðun um að breytast.
  • Greindu ástæður þínar fyrir að breytast og skrifaðu þær niður.
  • Festu sjónir á framtíðasýn þinni.
  • Láttu þig dreyma um hverju þú vilt fá áorkað á 12 vikum.
  • Breyttu fimm þessara drauma í markmið með því að setja þeim tímamörk og skifaðu þau niður.
  • Settu fingurinn á þrjú athafnamynstur sem geta hindrað þig og skrifaðu þau niður.
  • Settu fingurinn á þrjú ný athafnamynstur sem geta hjálpað þér að ná markmiðum þínum og skrifaðu þau niður.
  • Lestu það sem þú hefur skrifað á hverjum morgni og á hverju kvöldi meðan á 12 vikna áætlunni þinni stendur.