( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Líkami fyrir Lífið » Þjálfunaráætlunin » Staðreyndir um þjálfun
Föstudagur, 18 maí 2012

Staðreyndir um líkamsþjálfun

Til að breyta líkamanum verður að stunda lyftingar: 

Ef þú stundar bara hreyfingu, jafnvel þó þú borðir minna, verður niðurstaðan ekki mjög greinileg. Þú munt léttast en útlit líkamans mun ekkert breytast (stór pera verður lítil pera) Með lyftingum brennir þú ekki bara fitu heldur breytirðu lögun líkamans.
Ef þú stundar æfingar skiptir meira máli hvað þú borðar:
Ef þú hefur ekki næringarefni í líkamanum til að ná jafnvægi, að ekki sé sagt árangri, í kjölfar erfiðra æfinga er það eins og að reyna að kveikja á kveikjara án nokkurs gass. Það kemur neisti en enginn logi. Afraksturinn er niðurdrepandi. Á endanum myndir þú segja þessi kveikjari er ónýtur og henda honum. Þetta er einmitt það sem svo margir gera við hugmyndina um líkamsrækt. Þeir reyna hana án þess að nærast almenninlega og gefast svo upp í örvæntingu. Það er þess vegna sem EAS tryggir þér bestu fáanlegu fæðubótarefni þér til aðstoðar.
 
Ef konur stunda lyftingar verða líkamar þeirra grennri og vöðvaskornari:
Þetta stafar að hluta til af því að fita er 5 sinnum ummálsmeiri en vöðvar. Konur þurfa að skilja að þær verða ekki þreknar af lyftingum. Með því að skipta út fitu fyrir vöðva er hægt að ná fram ótrúlegri breytingu.
 
Lyftingar henta fólki á öllum aldri:
Hugmyndin var sú að lyftingar gerði fólk vöðvastirt. Rannsóknir sýna einmitt það gagnstæða – að rétt notkun handlóða eykur líkamsstyrk og liðleika. Sem betur fer eru fleiri og fleiri að átta sig á þessu.
 
Of miklar æfingar draga úr árangri:
Æfingar sem ég mæli með eru stuttar, ákafar og mjög áhrifaríkar. Þær örva vöðvana og brenna fitu. Þær taka minna en fjórar klukkustundir á viku. Það er allt of sumt.
 
Vöðvar stækka meðan hvílst er og endurnærst:
Á æfingunni erum við í rauninni að skemma örlítið vöðvavefinn með því að ofgera honum. Þegar æft er með lóðum á réttan hátt, verður vöðvavefurinn fyrir því sem kalla má minni háttar áfall, líkaminn bregst við með því að hefja viðgerð á vöðvavefnum. Ef æft er aftur áður en vöðvarnir hafa haft tíma til endurbótanna fer endurbygginginn fyrir lítið, það er ekki gott.
 
Að lyfta upp og setja niður lóð örvar vöxt vöðvanna:
Fyrir því eru nægar staðfestingar með rannsóknum að fullyrða að lækkun lóðann er rétt eins mikilvæg og að lyfta þeim. Lækkunin veldur mestum vöðvafrumuskemmdum sem örvar breytingarnar. Þess vegna á alltaf að láta vöðvana erfiða þegar þeir lengjast, láttu lóðin niður hægt og mjúklega. Ekki sóa tíma þínum. Þú átt að einbeita þér jafnt að því að lyfta lóðunum upp og setja þau niður.
 
Mikil áreynsla tryggir bestan árangur:
Við eigum ekki einungis við stífar æfingar. Við eigum ekki heldur við hversu mörgum klukkustundum þú eyðir í æfingasalnum. Við eigum við að þú finnir innra með þér kraft sem þú vissir ekki einu sinni að væri þar til staðar. Við eigum við að þú ýtir þér lengra en þú hefur nokkru sinni gert áður, út fyrir takmörk sem þú hélst að væru óyfirstíganleg.