
Nú þarft þú að vernda sjálfstraust þitt. Ein leið til þess er að gleyma öllu sem heitir fullkomnun. Hún fyrirfinnst ekki. Fullkomnun er nefninlega blekking og ef markmið þitt er að ná fullkomnun á einhverju sviði þessarar áætlunar þá er líklegt að þú sitjir uppi með vanmetakennd og óvissu, sem er ekki það sem sóst er eftir.
Örugg leið til að halda sig á beinu brautinni er að mæla árangurinn oft
Mundu að stuðningsaðilinn þinn er ávallt reiðubúinn að svara spurningum þínum. Mikilvægast af öllu er auðvitað að ef þér dettur í hug að hætta, af einhverjum ástæðum og þér finnst þú ekki geta haldið áfram hafðu endilega samband við okkur og leyfðu okkur að hjálpa þér. Ekki gefast upp á sjálfum þér. Ekki hætta. Mundu að þú ert ekki einn. Við erum hér til að hjálpa þér að ná árangri.
Gerðu ráð fyrir mótlæti og vertu tilbúinn að breyta hindrunum í orku.
Virtu loforð sem þú gefur sjálfum þér með því að ljúka því sem þú byrjar á.
Beislaðu orkuna í jákvæðum þrýstingi með því að takast á við ögranir.
Horfðu á framfarir, ekki fullkomnun til að byggja upp sjálfstraust.
Stundaðu hina gullnu reglu um endurgjald með því að gefa af sjálfum þér af óeigingirni.
Leyfðu EAS og þjálfurum að hjálpa þér að ná árangri. Með því að vinna saman eins og liðsheild getur okkur tekist þetta og okkur mun takast þetta.

