
Í Þjálfun-fyrir-LÍFIÐ áætluninni notum við tækni sem kallast ,,Átaksstiginn" til að hjálpa okkur við að skapa hápunktana. Þessi ,,mælir" er notaður til að mæla þrep þeirrar hnitmiðuðu orku sem við leggjum í æfinguna. Stiginn sem sýndur er hér byrjar á 1 og nær upp að 10.
Neðst á stiganum, við 1. þrep, jafngildir átakið því að sitja í sófa og horfa á sjónvarpið. 2. þrep jafngildir því að standa, 3. jafngildir því að ganga, 4. jafngildir því að bera innkaupapoka inn úr bílnum, 5. jafngildir því að bera pokana upp stiga og þannig koll af kolli upp í 10. þrep þar sem allt er sett í átakið, 100 prósent hnitmiðað átak.

Rétt notkun átaksstigans gerir það að verkum að Þjálfun-fyrir-LÍFIÐ reynslan stillir sig af sjálfsdáðun. Þess vegna er nánast öllum heilbrigðum, fullorðnum einstaklingum, án tillits til fyrri reynslu af æfingum, óhætt að hefja æfingar samkvæmt þessari áætlun. Ef þú ert byrjandi og getur lyft 15kg 12 sinnum í bekkpressu þá er það þitt hámarksátak. Einhver annar sem þjálfað hefur árum saman nær kannski hámarksátaki með því að pressa 92.5kg 12 sinnum.
Aðalatriðið er að þinn hápunktur er þinn hápunktur. Hann er einstakur fyrir þig. Þegar þú aðlagast og þróast gerir áætlunin það líka, þú getur í rauninni aldrei vaxið upp úr henni.
Það er mjög mikilvægt að þú gerir þér grein fyrir hverjir hápunktar þínir eru. Sannur hápunktur tiltekinnar æfingar, sönn upplifun 10. þreps, er þegar þú getur sagt í hreinskilni að þú hafir nýtt hverja einustu örðu af orku sem fyrirfannst í líkama þínum - þú gekkst á birgðir innri styrks. Þú munt uppgötva að sannur hápunktur á sér stað í huga þínum, ekki líkamanum.
Þegar þú hefur lokið mesta átaki fyrir tiltekna æfingu (eða vöðvahóp) og áður en þú skrifar niður hvort þú náðir þrepi 8, 9 eða 10 þarftu að svara þessari spurningu: Hefðir þú getað gert æfinguna einu sinni til viðbótar ef við hefðum staðið hjá þér, hvatt þig áfram til að ná enn lengra? Ef þú svarar í einlægni: ,,Útilokað!" þá óskum við þér til hamingju. Þú komst á 10. þrep.
En hafirðu svarað: ,,Kannski hefði ég getað gert eina enn" þá hefurðu líklega komist á 9.þrep sem er góður árangur. Vertu ánægður með árangurinn og settu þér að gera jafnvel enn betur næst. Þú munt ekki ná hápunkti í hvert sinn. Það væri eins og afreksmaður slægi met í hvert sinn sem hann keppti. Hápunktur er nefnilega eins og met, það er áskorun, sem gerir hann að verðugu markmiði. Mjög fáir hápunktar í lífi þínu munu nást fyrirhafnarlaust.
Með Þjálfun-fyrir-LÍFIÐ reynslunni útlistum við nákvæmlega hvernig þú átt að reyna við hápunkta þína og við biðjum þig að meta styrk átaksins. Við munum skapa bylgjulaga átaksmynstur, ávallt byrja á viðráðanlegu þrepi og teygja okkur í átt að hápunkti.

