( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Líkami fyrir Lífið » Þjálfunaráætlunin » Að halda sig við efnið
Föstudagur, 18 maí 2012

Að halda sig við efnið

Það er fullljóst að þegar við breytum lífi okkar þá er erfiðast að komast af stað, sem þú hefur reyndar gert. Þú ert kominn á töluvert skrið. Ef þú heldur áfram muntu uppskera markverðan árangur. Nema...þú stefnir af leið. Það gerist allt of oft. Við viljum ekki að það gerist. Þú ekki heldur.

Sjáðu bara hvað þú lítur betur út með hverri viku sem líður. Fitan er loks að bráðna af þér. Í hennar stað eru að mótast vöðvar. Þú ert sterkari, hraustari. Þér finnst þú óstöðvandi þar til hið óvænta gerist. Eitthvað fer úrskeiðis. Þú ert blindaður af slæmu höggi, t.d. orðið fyrir meiðslum, veikindum, sambandsslit eða verst af öllu ástvinamissir. Þá verður þú að spyrja sjálfan þig. “hvað get ég gert til að breyta þessu í jákvæða reynslu?”
 
Þegar þú byrjar 12. vikna Líkama fyrir Lífið áætlunina verður þú að lofa sjálfum þér því að ljúka öllu því sem þú byrjar á, hvað sem það kostar. Þegar við vitum, t.d. fullvel, innst inni, að við ættum að vera að gera eitthvað og erum ekki að því, eins og að æfa reglulega, borða skynsamlega, ljúka 12 vikna áætluninni, þá erum við að ljúga að sjálfum okkur. Við verðum að virða þetta loforð af sömu alvöru og loforð gagnvart maka sínum eða barni. Þetta er loforð.
 
Þú getur ávalt leitað til EAS.