( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Líkami fyrir Lífið » Þjálfunaráætlunin
Föstudagur, 18 maí 2012

Þjálfunaráætlunin

Ímyndaðu þér að eftir aðeins 12 vikur getur þú verið með granna, heilbrigða og stælta líkamann sem þig hefur alltaf langað til að eignast. Ímyndaðu þér að vera á hápunkti lífs þíns, að vera með sjálfstraustið til að framkvæma það sem þig hefur alltaf langað til að gera, að vera viss um að gera réttar ákvarðanir á réttum tíma, og að vita að þú hefur styrkinn til að breytast – ekki aðeins líkamlega heldur getur þú einnig sigrast á öllu því sem þú leggur þér fyrir hendur. Ef þetta hljómar ótrúlega eða jafnvel ómögulegt þá er kominn tími til að kynna þér fyrir Þjálfun-fyrir-LÍFIÐ áætluninni.

 
Nú er komið að þér að slást í hópinn með þeim sem hafa náð ótrúlegum breytingum með hjálp sérfræðikunnáttu EAS.
 
Allt um Líkami-fyrir-LÍFIÐ þjálfunaráætlunina er byggt á reyndum og sönnum kenningum sem hafa vera þróaðar nákvæmlega til að auka vöðva og styrk ásamt því að brenna líkamsfitu. Að auki munt þú þjálfa þig í að setja og ná markmiðum, mynda jákvætt hugarfar, auka einbeitingu, yfirstíga hindranir, og verða sterkari persóna á allan hugsanlegan máta. EAS svarar spurningum þínum um Líkami-fyrir-LÍFIÐ æfingaráætlunina ásamt því að leiðbeina þér skref fyrir skref, hvernig þú átt að æfa. Við höfum einnig bætt við þjálfunarskýrslu sem mun aðstoða þig við að skipuleggja æfingarnar fyrirfram og skrá árangurinn þinn.