( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Líkami fyrir Lífið » Skráning
Föstudagur, 18 maí 2012
Líkami fyrir Lífið

Nauðsynlegt að fylla út *

Hverjir geta skráð sig í keppnina?

Keppendur verða að hafa náð 18 ára aldri til að geta tekið þátt í keppninni. Starfsmenn EAS eða Artasan (umboðsaðila EAS), eigendur samstarfsfyrirtækja og keppendur, sem hafa hlotið verðlaun í vaxtarræktar- og/eða fitness-mótum mega taka þátt í keppninni en eiga ekki rétt á verðlaunasæti. Starfsmenn sem vinna í verslununum eða stöðum sem selja EAS vörur (matvörubúðir, heilsubúðir, o.s.frv.) mega taka þátt í keppninni án þess að afsala sér verðlaunum. Keppendur mega ekki nota anabólíska stera eða nokkur lyf eða lyfjaefni til að bæta árangur sinn, nema lyfjanotkunin sé samkvæmt læknisráði við greindum sjúkdómi eða öðrum veikindum og með samþykki keppnishaldara. Öllum sigurvegurum ber að undirrita yfirlýsingu um sannmæli og gangast undir lyfjapróf sé þess óskað.

 


Skráðu þann mánudag sem þú ætlar að hefja 12 vikna áskorunina.


Með því að skrifa undir hér að ofan staðfestir þú að hafa lesið reglurnar í áskoruninni Líkami fyrir lífið og samþykkir að skuldbinda þig þeim.

Með því að skrá mig í Líkama fyrir Lífið áskorun samþykki ég skilmála EAS um áskorunina.

Reglur og skilyrði EAS áskilur sér rétt til að breyta reglunum, bæta þær og breyta verðlaunum án fyrirvara ef þurfa þykir. Allar breytingar á reglum eða verðlaunum yrðu tilkynntar með tölvupósti til keppenda og á síðu Líkama fyrir lífið, www.eas.is. Ákvarðanir dómara um allar breytingar eru endanlegar. Keppendur í Líkama fyrir lífið áskoruninni 2010 fría EAS, samstarfsaðila þess, tengd fyrirtæki, forstjóra, framkvæmdastjóra og alla starfsmenn þeirra undan allri ábyrgð á mögulegri áhættu, missi, meiðslum og/eða skaða er getur hlotist af þátttöku í áskoruninni. Hver keppandi ber alla ábyrgð á meiðslum eða skaða af nokkru tagi er getur komið fram við þátttöku í Líkama fyrir lífið. Með þátttöku í Líkama fyrir lífið áskoruninni og afhendingu á fullgerðu skráningarblaði samþykkir þú af fúsum og frjálsum vilja að veita EAS og samstarfsaðilum leyfi til að nota nafn þitt, myndir og svör við spurningum (að öllu leyti eða að hluta til) í kynningar- og auglýsingar á EAS og starfsemi þess í öllum miðlum og á allan hátt án takmarkana og að allar upplýsingar sem berast með skráningu þinni verði einkaeign EAS. Ræddu við heimilislækninn áður en þú breytir æfingum, mataræði eða hefur notkun fæðubótarefna, einkum ef þú tekur lyf, lyfseðilskyld sem önnur, eða ert með langvinnan sjúkdóm. Ef þú hefur ekki reynslu af styrktarþjálfun eða breytir æfingaáætlun þinni skaltu ráðfæra þig við viðurkenndan þjálfara eða leiðbeinanda á æfingarstöðinni þinni. Stigafjöldi keppenda fyrir svör spurninga og breytingar á líkamsástandi er trúnaðarmál og verður ekki gefinn upp. Ef ekki næst í sigurvegara í uppgefnu símanúmeri í fullgerðri skráningu í innan 5 daga frá því að úrslit eru kunngerð, verður hann dæmdur úr leik.

  Refresh Captcha