( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Líkami fyrir Lífið » Næringaráætlunin » Næringaraðferð með forskoti
Föstudagur, 18 maí 2012

Næringaraðferð með forskoti

Vert er að huga að varðandi nýtt fyrirkomulag við máltíðir er að sjá til þess að ísskápurinn og eldhússkáparnir séu ætið birgir af réttum fæðutegundum. Reglan er sú að ,,Ef þér mistekst að skipuleggja þá ertu að skipuleggja mistök." Ef þér mistekst að skipuleggja innkaupin þannig að ekki sé ávallt til réttur og næringarríkur matur þá gætirðu lent í erfiðleikum með að halda þig við áætlunina. Skipuleggðu máltíðirnar áður en þú verslar. Birgðu þig upp af próteinríkri fæðu, kolvetnum og grænmeti. Til þess að losa mann undan vangaveltum um samsetningu máltíðarinnar þá er hér aðferð sem sparar bæði tíma og peninga. Myoplex er duft sem hefur hjálpað þúsundum manna og kvenna til að ljúka áætluninni. Hið rétta er að nánast hver einasta manneskja sem lauk síðustu 12 vikna áskoruninni notaði Myoplex frá EAS.

 
Myoplex er einfalt, blandað í vatn í hristara eða blandara. Á innan við mínutu ertu tilbúin(n) með ,,ofur-hristing" (þetta er eins og næringarríkur mjólkurhristingur) og í honum eru öll þau næringarefni sem líkami þinn þarfnast til að standast álag krefjandi æfinga.
 
Þú getur hugsað þetta á eftirfarandi hátt: Þú fyllir innkaupakerru af heilsusamlegum matvörum, mögru kjöti, ávöxtum, grænmeti, mjólkurvörum og tekur úr þessu öll mikilvægustu næringarefnin og setur þau öll á einn stað og fleygir hinu sem gengur af, umfram hitaeiningingum og mettaðri fitu. Ef þú síðan skiptir allri hollustunni upp í hæfilega skammta þá stendurðu upp með sérstaklega sniðna næringu, nákvæma uppskrift af næringu sem hefur eingöngu jákvæð áhrif á líkamann. Þannig er Myoplex, háþróuð fæðuvara sem hefur verið vísindalega þróuð til að næra líkamann.
 
Án þessa forskots með Myoplex hefur fólki ekki tekist að halda sér í formi ár eftir ár. Fólk hefur ekki tíma til þess að taka lófafylli af vítamínum á hverjum degi. Þetta er önnur ástæða þess að fólk notar Myoplex þar sem þrír skammaf á dag sjá líkamanum fyrir 150% af ráðlögðum dagskammti af 29 nauðsynlegum vítamínum og steinefnum. Þar að auki er í einum skammti meira af próteini en í kjúklingabringu, jafnmikið af orkuríkum kolvetnum og í skammti af brúnum hrísgrjónum og fituinnihaldið er mjög lágt.
 
Ekki er þar með sagt að ekki megi ná góðum árangri með venjulegum mat. Það er alveg mögulegt, sérstaklega ef þú hefur tíma til að versla og undirbúa sex holla málsverði á hverjum degi. Flestir hafa hreinlega ekki tíma til að borða sex heilnæmar máltíðir á dag. Fyrir þetta fólk er Myoplex lausnin, forskot sem gerir það fyrirhafnarlítið að fylgja Næring-fyrir-LÍFIÐ aðferðinni.