( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Líkami fyrir Lífið » Næringaráætlunin » Gæðakolvetni
Föstudagur, 18 maí 2012

Gæðakolvetni

Grænmeti er næringarríkt og heilsusamlegt en inniheldur ekki umtalsvert magn af próteini eða kolvetnum en ætti þó að fylgja minnst tveimur máltíðum daglega. T.d. spergilkál, spergill, kál, gulrætur, blómkál, grænar baunir, paprika, sveppir, tómatar, baunir, rósakál, ætiþistill, hvítkál, sellerí, zucchini, agúrka og laukur. Grænmeti er hitaeiningasnautt en ríkt af trefjum og / eða þrávarnarefnum (sem rannsóknir hafa sýnt að komi í veg fyrir krabbamein). Grænmeti er hollt ef það er ekki steikt í smjöri, löðrað í osti eða djúpsteikt. Grænmeti má kaupa ferskt og frosið og borða hrátt eða léttsoðið.

 

Kartöflur

Þær eru þægilega stórar til að henta sem einn skammtur, því það nægir að velja eina sem er á stærð við hnefa þinn. Þær henta vel með nánast hvaða próteingjafa sem er og það er auðvelt að flytja þær með sér. Þær geymast vel og þær bragðast ágætlega þó ekki sé sett smjör eða sýrður rjómi á þær. Þær má bragðbæta með tómatsósu eða annari fitusnauðri sósu eða bara borða þær eins og þær koma fyrir.
 
Brún hrísgrjón
Meginmunurinn á brúnum hrísgrjónum og hvítum felst í vinnsluaðferðinni. Þetta hefur einnig áhrif á hvernig líkaminn nýtir kolvetnin. Fæðan er eldsneyti líkamans. Líkaminn brennir brúnum hrísgrjónum miklu hægar en hvítum. Aðalatriði er að muna að skammtur af brúnum hrísgrjónum, með skammti af próteini og grænmeti er ein máltíð.
 
Haframjöl
Auðvelt að matreiða, næringarríkt og ódýrt og bragðast vel.
 
Bygg
Besta uppspretta kolvetna sem fyrirfinnst. Fáanlegt í flögum eða kurlað. Má elda og borða sem heitan graut. Næringarríkasta byggið og það sem hvað erfiðast er að útvega er hýðisbygg. Það má þó stundum finna í heilsuvöruverslunum. Þó að bygg sé oftast notað í súpur má einnig gera úr því graut. Gott er að bragðbæta það með kanel.
 
Pasta
Spaghetti, makkarónur, skrúfur eða hvernig sem það lítur út þá er pasta góð og fitulítil uppspretta kolvetna. Lykillinn að því að geta notað pasta í þessari áætlun er að átta sig á muninum á fullum diski og einum skammti. Margir halda að þar sem pasta er fitulítið þá sé óhætt að borða það að vild. Ekki er leyfilegt að nota sósur eða ost út á pasta. Ég borða pasta eins og það kemur fyrir eða kreisti sítrónu yfir það. Einfalt og gott.
 
Sætar kartöflur og kínverskar
Margir halda að vegna sætubragðsins séu fleiri hitaeiningar í sætum kartöflum en venjulegum. Það er ekki rétt. Sætubragðið stafar af ensími í kartöflunni sem breytir sterkjum í sykur. Þær má baka, sjóða eða tilreiða í örbylgjuofni á sama hátt og venjulegar kartöflur. Gætið þess að geyma þær ekki í kæliskáp því þær harðna og verða beiskar á bragðið. Þær geymast í allt að mánuð á köldum og þurrum stað. Við herbergishita er geymsluþolið aðeins ein vika.
 
Jógúrt
Kolvetnauppspretta á listanum okkur sem þýðir að hennar skuli neyta með skammti af próteini. Stundum blanda ég saman jógúrt og kotasælu til að útbúa snöggan morgun- eða kvöldverð. Athugið að sykurbætt jógúrt er ekki á listanum og að jógúrt eins og sér er ekki máltíð.
 
Ávextir
Önnur kolvetnauppsretta sem finnst í hæfilegri skammtastærð frá náttúrunnar hendi. Ávextir eru ríkir af kolvetnum og öðrum næringarefnum, þægilegir að flytja með sér og eru ásamt skammti af próteini tilbúin máltíð.
 
Allir sem hefja Líkami-fyrir-LÍFIÐ áætlunina verða að venja sig af hvítu brauði, kexi, kökum og öðrum kolvetnafæðutegundum sem þeir hafa verið að neyta í yfirskömmtum. Undantekningin er þó sú að um heilhveitibrauð sé að ræða og að fullur skilningur ríki á því að brauðskammtur er tvær venjulegar sneiðar, eitt pítubrauð eða ámóta. Ein máltíð getur því verið grilluð kjúklingasamloka eða kjúklingapíta.