( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Líkami fyrir Lífið » Næringaráætlunin
Föstudagur, 18 maí 2012

Næringaráætlunin

Kynntu þér Næringaráætlun Líkama fyrir Lífið, hvernig fæðubótarefni þú átt að nota og hvernig þú getur borðað sex næringarríkar máltíðir á dag án mikillar fyrirhafnar.

 

Við höfum einnig bætt við næringarskýrslu sem mun aðstoða þig við að skipuleggja máltíðir fyrirfram og skrá það sem þú borðar. Hana getur þú sótt hér á vefnum þér að kostnaðarlausu.
 
Innan árs verður hver einasta fruma horfin sem líkami þinn er gerður úr núna. Staðreyndin er sú að líkami þinn “endurnýjast” á ári hverju. Út með það gamla, inn með það nýja. Hvað heldurðu að líkami þinn noti til að endurnýja sig? Hvaðan fær hann hráefnin til að byggja upp nýjar húðfrumur, heilafrumur, vöðvafrumur, beinfrumur, nýtt blóð og jafnvel nýtt hjarta. Úr fæðunni, það er rétt. Við erum það sem við borðum.
 
  • Borðið sex litlar máltíðir á dag, á 2-3 tíma fresti.
  • Borðið skammt af próteini og kolvetnum í hverri máltið.
  • Skammtur er jafnstór lófa þínum eða krepptum hnefa.
  • Takið inn eina matskeið af ómettaðri olíu á hverjum degi eða borðið þrjá skammta af feitum fiski vikulega.
  • Drekkið að 8 til 10 glös af vatni á hverjum degi. Passið þó ofneyslu.
  • Notið fæðubótarhristing, ef nauðsynlegt er, til að tryggja rétt magn næringarefna daglega.
  • Skipuleggið máltíðir fyrirfram og skráið hvað þið borðið og notið til þess daglega árangurskýrslu.
  • Skipuleggið innkaupin.
  • Borðið það sem ykkur lystir einn dag í viku.
 
Mundu bara að góð næring er alveg jafn mikilvæg og æfingarnar. Næringin er eldsneytið. Án hennar verður enginn logi. Enginn árangur. Um leið og við byrjum að æfa af kappi verðum við að borða rétt, við verðum stöðugt að næra líkamann á því sem hann þarfnast til að endurnýja sig, svo við uppskerum árangurinn hratt og örugglega.