( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Greinar » Fæðubótarefni » Trehalósi
Föstudagur, 18 maí 2012

Trehalósi

Trehalósi er tvísykra sem finnst í náttúrunni sem hefur veitt frumum dýra og planta þann eiginleika að komast hjá vökvaskorti í áratugi og endurkalla lífsvirkni þeirra eftir vökvasöfnun. Þessi athugun hefur leitt til notkunar trealósa sem bindiefni margra vara í lyfjaiðnaðinum og gefur til kynna tækifæri á því að vera innihald í þurrkuðum, bökuðum og unnum matvælum jafnframt í bóluefnum og í líffærum í líffæraflutningum.

 

Efnið er sérstaklega hæfandi sem sætuefni í næringardrykkjum og öðrum orkuvörum sem notað er af neytendum sem hluti af þeirra daglegu matarvenjum. Sem margþætt sykra sem hefur aðeins helming sætuáhrifa miðað við súkrósa þá bætir trehalósi bragð, fyllingu og gæði matar og drykkjar.

 

 

Trehalósi verður til á náttúrulegan hátt og er náttúrulegur orkugjafi sem gerir hann að frábæru innihaldsefni fyrir vörur handa fólki sem krefst bragðgóðrar næringar og orku fyrir heilsusamlegt líferni fólks. Vörur sem innihalda trehalósa mæta kröfum milljóna fólks sem lifa annríku og kröftugu líferni.

 

Bráðabirgðarannsóknir hafa sýnt fram á að trehalósi í íþróttadrykkjum (bragðefni, kolsýra, vatn) framkallar lægri insúlín virkni heldur en bragðbættir drykkir með glúkósa. Rannsóknir halda áfram til þess að komast að sambandi þessa efnaskipta og mögulega orku og afköstum trehalósa í íþróttadrykkjum.

 

Vegna einstakrar efnasamsetningar þá helst trehalósi stöðugur undir lágu PH (sýrugildi), jafnvel undir miklum hita. Ólíkt öðrum orkugjöfum losar efnið ekki innihaldsefni sín og hefur því ekki áhrif á gagnverkum amínósýra og próteina.

 

Trehalósi er aðeins 45% jafn sætur og súkrósi og gefur því jafnara bragð án þess að þurfa frekari bragðefnabætingu. Hann gefur hreina bragðmyndun með engu eftirbragði. Það sem mestu máli skiptir er að trehalósi getur verið notaður í mat- og drykkjavörum í samblöndun við súkrósa og öðrum sætuefnum til þess að fulltryggja sætubragðið og þess vegna tryggt að bragð vörunnar sé sem best verður á kosið.

 

Trehalósi leysist vel upp í vatni. Hann er flokkaður með minni leysni við lágan hita en hærri leysni heldur en súkrósi við háan hita.

AddThis Social Bookmark Button