( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Greinar » Fæðubótarefni » Kreatín fyrirbyggir krampa
Föstudagur, 18 maí 2012

Kreatín fyrirbyggir krampa

Vísindalegar rannsóknir halda áfram að bægja niður slæmar sögusagnir um kreatín. Fáir hlutir fara meira í taugarnar á mér en ónákvæmar greinargerðir í fjölmiðlum, sérstaklega þegar það eru fréttir um fæðurbótarefni eins og kreatín.

 

Sjónvarpið, blaðagreinar og internetið innihalda oft “fréttir” varðandi kreatín. Oft er megnið af þessum upplýsingum ekki fengnar frá fyrstu hönd, þ.e.a.s. þær eru fengnar í gegnum milliliði- t.d frá næringarprófessorum eða frá fjölskyldulæknum. Þrátt fyrir að vera vel menntaðir þá eru þessir menn oftast langt frá fremstu víglínu í kreatín rannsóknum.

 

 

Gott dæmi er grein sem var í nýlegu Time blaði. Í þessari grein, ráðleggur höfundurinn, sem er er læknir, að við “forðumst algjörlega kreatín” af því að það veldur krömpum ásamt öðrum aukaverkunum. Í hans orðum þá “eru engar áreiðanlegar rannsóknir um kreatín”.

 

Þetta eru fréttir fyrir Jeff Volek sem er doktor og rannsóknarmaður hjá Ball State Háskólanum. Hann hefur sjálfur séð um yfir tylft vísindalegra rannsókna á áhrifum kreatíns sem fæðubót. Sem andsvar við þeim sögum sem tengja saman krampa og kreatín notkun, rannsökuðu Dr.Volek og starfsbræður hans áhrif kreatín neyslu á karlmenn sem æfðu af krafti í 36°C hita og í 80% rakastigi - aðstæður sem eru ákjósanlegar fyrir hina svokölluðu kreatín-orsökuðu krampa.

 

Jafnvel eftir að hafa fengið hleðslu skammt af kreatíni (yfir 20 grömm), hafa svo hjólað af krafti í 30 mínútur og fylgt því eftir með þremur 10 sek. sprettum sem þeir gáfu allan kraft í undir þessum erfiðu aðstæðum, þá “voru ENGIN tilfelli af neikvæðum einkennum, þ.á.m. krömpum” sagði Dr. Volek.

 

Rannsóknarmenn segja að algengasta orsök vöðvakrampa sé ekki kreatín neysla, heldur skortur vatns- og rafefnaneyslu (t.d. natríum, kalíum og klóríð) . Til að koma í veg fyrir þetta vandamál, þá mæla þeir með að íþróttamenn drekki ekki minna en 10 vatnsglös á dag og eitt auka vatnsglas fyrir hvern drykk sem inniheldur koffín sem neytt er yfir daginn.

AddThis Social Bookmark Button