( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Greinar » Fæðubótarefni » Hvað er Karnósín?
Föstudagur, 18 maí 2012

Hvað er Karnósín?

Karnósín (beta-alanín-L-histidín) er náttúrulegt dípeptíð sem var uppgötvað í Rússlandi árið 1900 og það er myndað úr amínósýrunum Beta-Alanine og L-Histidín. 

Karnósín finnst í vöðvavef, hjartanu og heilanum. Vegna þess að megnið af þeim rannsóknum sem hafa verið gerðar á Karnósíni voru gerðar í Rússlandi þá hafa þær ekki verið fáanlegar í vestur heiminum þar til nýlega. Unanfarið hefur Karnósín aðalega verið þekkt fyrir að hafa ótrúlega kröftug áhrif gegn öldrun en það gerir miklu meira. 

Karnósín hefur verið tengt virkni sem andoxunarefni, hlutleysir mjólkursýru og hefur jákvæð áhrif á taugaboð. Karnósín finnst aðallega í tegund tvö vöðvaþráðum, það eru ,,snöggu" vöðvaþræðirnir sem eru mikilvægastir fyrir sprengikraft, eins
og t.d. í spretthlaupi eða lóðarþjálfun. Það er mjög mikilvægt fyrir þá sem stunda íþróttir að hámarka karnósín magn í vöðvunum, vegna þess að karnósín eykur getu vöðvanna til að hlutleysa vetnisjónina (H+) og framleiðsla á H+ er afleiðing af orkulosun, sem leiðir til bruna og þreytu í vöðvunum. 

Þetta þýðir einfaldlega að Karnósín eykur getu þína til að æfa
lengur og af meiri ákafa með því að hlutleysa sýruna sem myndast í vöðvunum. Því meira karnósín, því minni sýra, því lengur og betur getur viðkomandi æft. Annað sem er merkilegt við Karnósín er að það er nauðsynlegt hvarfefni fyrir myndun á Nitric Oxide. Það er mikilvægasta hvarfefnið fyrir myndun á NOS (nitric oxide synþasi), sem er ensímið sem ber ábyrgð á myndun á Nitric Oxide.

Ertu farinn að átta þig á hversu mikilvægt og ótrúlegt Karnósín er? Karnósín kemur líka í veg fyrir meiðsli í íþróttum og flýtur endurbata. Skýringin á þessu er að kröftug þjálfun veldur oxunar skemmdum á vöðvum og þetta tæmir Karnósín forðann. Sindurefnin (free radicals) sem myndast við þjálfun valda skemmdum á fjölda vefja líkamans. Þetta veldur líka ferli sem kallast próteinsundrun, og það ferli hluta af því sem gerist í frumuhimnu við öldrum. Karnósín berst gegn þessu ef það er nóg magn af því til staðar.

En afhverju tökum við þá ekki risa skammta af Karnósíni?
Þegar maður tekur inn Karnósín, þá brotnar það niður í amínósýrurnar Beta-Alanine og Histidín og verður svo umbreytt aftur í Karnósín í vöðvunum. Flestir fá nægjanlegt magn af Histidíni, og rannsóknir hafa sýnt að neysla á Beta-Alanine er áhrifaríkari en að taka Karnósín. Annar kostur við að taka Beta-Alanine er að það er margfalt ódýrara en að taka Karnósín.

Nýleg rannsókn var gerð á áhrifum kreatíns og kreatíni ásamt
Beta-Alaníni á styrk og líkamssamsetningu. Fengnir voru 33 karlmenn úr bandarískum háskólum sem stunduðu amerískan fótbolta og þeir voru látnir stunda lóðarþjálfun. Mönnunum var skipt í þrjá hópa, einn sem fékk lyfleysu, annan sem fékk kreatín og þann þriðja sem fékk kreatín og Beta-Alanín. 

Allir í hópnum voru prófaðir fyrir styrk (hámarks þyngd í
bekkpressu og hnébeygju), kraft (,,wingate" loftháð kraft próf, 20 hopp) og líkamsamsetningu (fitusnauður vöðvamassi, fituprósenta). 

Niðurstöðurnar sýndu að hópurinn sem fékk kreatín og beta alanín bæti á sig meiri vöðva massa og missti meiri fitu en hinir hóparnir. Hann sýndi einnig mun betri árangur í styrk samanborið við hópinn sem fékk bara kreatín, og miklu betri en lyfleysu hópurinn.

Kjarni málsins er sá að vísindin og rannsóknir sýna að Beta-Alanine virkar, það eykur Karnósín magn í vöðvunum, sem gerir þér kleift að æfa lengur og af meiri krafti auk þess að það hefur margvísleg góð áhrif á líkamann.

Beta-Alanine er að finna í PRO SCIENCE PUSH

AddThis Social Bookmark Button