( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Greinar » Fæðubótarefni » Prótein fyrir svefninn?
Föstudagur, 18 maí 2012

Prótein fyrir svefninn?

Mikilvægi þess að taka prótein fyrir svefn má ekki vanmeta. Þar sem nýmyndun próteina og niðurbrot eiga sér stað á meðan sofið er, þá er mjög mikilvægt að útvega líkamanum allar nauðsynlegu amínósýrururnar með því að fá sér próteindrykk fyrir svefn. Margar rannsóknir staðfesta að neysla amínósýra og þá sérstaklega nauðsynlegra amínósýra, getur örvað nýmyndun próteina og uppbyggingaráhrif vöðva.

 

Hvaða prótein er best? Samsetning próteina sem hafa hæga losun yfir nóttina. Það þýðir samsetning af einangruðu mysupróteini, kalsíum kaseinat og jafnvel einangruðu mjólkurpróteini. Einangrað mysuprótein hefur hraða losun og er mikilvægt þar sem það inniheldur u.þ.b. 25% BCAA sýrur (amínósýrurnar levsín, valín og isólevsín) og 50% nauðsynlegar amínósýrur. BCAA amínósýrur hafa sýnt fram á að draga úr vöðvaniðurbrotum sem getur skilað sér í betri endurnæringu og auknum fitusnauðum vöðvamassa. Gæða mysuprótein getur einnig styrkt ónæmiskerfið sem er mikilvægt í máltíð fyrir svefn.

 

Kalsíum kaseinat hefur hægari losun og útvegar amínósýrur sem líkaminn þarfnast yfir lengra tímabil. Það hefur náttúrulega hátt gildi af amínósýrunni L-glútamín og þá sérstaklega í auðmeltanlegra peptíð formi. Glútamín er nauðsynleg til að auka nýmyndun próteina og til að draga úr niðurbroti vöðvavefs. Einangrað mjólkurprótein inniheldur bæði mysu og kasein. Að taka 20 til 40 grömm (fer eftir líkamsþyngd) af blöndu einangraðs mysupróteins og kalsíum kaseinat (blandað með vatni) u.þ.b. einni til einni og hálfri klst. fyrir svefn getur gert undraverk á meðan sofið er.

AddThis Social Bookmark Button