
Hefur þig ekki einhverntímann órað um hvort öll þessi fitubrennsluefni virki eður ei. Hér eru aðeins nokkur dæmi til að hjálpa þér í gegnum frumskóginn.
Flokkun fitubrennsluefnanna:
Grænt ljós: Rannsóknir lofa góðu, hugsanlega gott fitubrennsluefni.
Rautt ljós: Virkar ekki, peningasóun!
Koffín
Koffín er eitt mest rannsakaða fæðubótarefnið í dag. Rannsóknir hafa sýnt að það getur leyst fitusýrur úr fitufrumum líkamans, og þar með aukið getu líkamans til að brenna fitu. Rannsóknir hafa líka sýnt að koffín getur aukið skamm- og langtíma úthald og seinkar þreytu, og eykur þannig afköst í þrek æfingum (og eykur því fitubrennslu enn meira).
Ráðlagður skammtur: Um 300 milligrömm á dag
Flokkur: Grænt ljós
Chitosan
Chitosan er oftast markaðsett sem efni sem hindrar upptöku fitu. Sum fyrirtæki ganga svo langt að fullyrði að það geti komið í veg fyrir að líkaminn frásogi allt að 120 grömm af fitu á dag. Rannsókn sem birt var í Aljóðlega Tímaritinu um Offitu (International Journal of Obesity) sýndi að þeir sem tóku chitosan höfðu enga aukna fitu í saur og því hindrað chitosan ekkert frásog fitu. Þú ættir ekki að eyða peningunum þínum í chitosan.
Flokkur: Rautt ljós
CLA
Fjöldi rannsókna hafa staðfest getu CLA til að minnka líkamsfitu. Ein athyglisverðasta rannsóknin var nýlega birt í Aljóðlega Tímaritinu um Offitu (International Journal of Obesity), og hún sýndi að CLA getur verið sérstaklega áhrifaríkt í að minnka fitu á maganum. Í tvíblindu rannsókninni var 25 manna hópur, þar af fengu 14 manns 4.2 grömm af CLA á dag, meðan hinn hópurinn fékk lyfleysu. Eftir fjórar vikur þá hafði magaummálið minnkað talsvert meira (2.5cm) í CLA hópnum.
Ráðlagður skammtur: Taktu 1 til 1.5 grömm þrisvar á dag með máltíðum.
Flokkur: Grænt ljós
Grænt te
1999 var birt rannsókn í Ameríska Tímaritinu um Vísindalega Næringu (American Journal of Clinical Nutrition) sem sýndi að grænt te getur aukið efnaskipti og aukið fitubrennslu í mönnum. Sumir hafa haldið fram að þetta sé út af því að grænt te inniheldur koffín. Höfundar þessarar rannsóknar voru hinsvegar ekki sammála “grænt te extrakt eykur efnaskipti og fitubrennslu meira en koffín innihald þess gæti gert”.
Ráðlagður skammtur: Taktu á milli 200-300 milligrömm á dag. Leitaðu eftir extrakti sem inniheldur allavega 40 prósent EGCG.
Flokkur: Grænt ljós
Synefrín
Mjög vinsælt í staðinn fyrir efedrín og hefur hugsanlega eitthvað af fitubrennslueiginleikum efedríns án þess þó að örva miðtaugakerfið jafn mikið. Ein rannsókn sem birt var í tímaritinu Lækningar Rannsóknir (Current Therapeutic Research) sýndi að fullorðnir einstaklingar sem þjáðust af offitu misstu talsvert af líkamsfitu með því að taka sítrus aurantium extrakt(synefrín), koffín og St.John´s wort. Fleiri rannsóknir hafa verið gerðar á synefríni og lofa góða.
Ráðlagður skammtur: 20 milligrömm af synefríni, tekið með koffíni, gæti reynst vel.
Flokkur: Grænt ljós
Pyruvate
Fjöldi rannsókna hafa verið gerðar á áhrifum pyruvate, og hafa niðurstöður þeirra verið teknar úr öllu samhengi í fullyrðingum í mörgum auglýsingum. Venjulegur skammtur af pyruvate er 3-5grömm og það er engin rannsókn sem sýnir að það magn geri nokkuð gagn. Rannsókn sýndi að 22-28grömm á dag jók fitubrennslu, og slíkt magn er bæði fokdýrt og flestir myndu verða veikur af þannig skammt.
Flokkur: Rautt ljós

