( ... hlutir )
Tools
Nýr notandi

EAS - POWER TO THE PEOPLE

Þú ert hér: Forsíða » Fræðsluefni » Greinar
Miðvikudagur, 22 feb 2012

Greinar

Fjórar sögusagnir næringarfræðinnar afsannaðar

Sögusögn 1: Magn af kólesteróli í fæðu hefur mikil áhrif á magn af kólesteróli í blóði

 

Sannleikurinn: Það magn sem þú neytir af kólesteróli í fæðu hefur mjög lítil áhrif á magnið af kólesteróli í blóði, og það er góð ástæða fyrir því. Kólesterólið í blóðinu okkar er bæði gert úr kólesterólinu sem við borðum og því sem lifrin og aðrir vefir líkamans framleiða. Þegar neysla kólesteróls minnkar, þá bregst lifrin við með því að framleiða meira kólesteról, og því breytist heildar kólesterólmagn blóðsins lítið.

Á sambærilegan hátt þá framleiðir lifrin minna kólesteról ef neyslan sé aukin, og þá breytist heildar kólesterólmagn blóðsins lítið. Í raun og veru þá veldur breyting á kólesteról neyslu í besta lagi nokkura prósenta breytingu á blóð kólesteról magni. Í rannsókn sem var gerð á þessu, þá lækkaði kólesteról magn í blóði um aðeins 2-3% hjá þeim sem lækkuðu kólesteról neyslu um 35%. Ef að kólesteról neysla er ekki sökudólgurinn, hver er það þá? Frá næringarlegu sjónarmiði þá virðist neysla á “trans”-fitusýrum hafa neikvæðustu áhrifin á blóðkólesteról. Trans-fitur verða til:

 

Trehalósi

Trehalósi er tvísykra sem finnst í náttúrunni sem hefur veitt frumum dýra og planta þann eiginleika að komast hjá vökvaskorti í áratugi og endurkalla lífsvirkni þeirra eftir vökvasöfnun. Þessi athugun hefur leitt til notkunar trealósa sem bindiefni margra vara í lyfjaiðnaðinum og gefur til kynna tækifæri á því að vera innihald í þurrkuðum, bökuðum og unnum matvælum jafnframt í bóluefnum og í líffærum í líffæraflutningum.

 

Allt sem þú vissir ekki um kreatín og gott er að vita

Kreatín er skaðlaust og getur gert hugsun skýrari og verndað frumur frá oxunarskemmdum. Ótal margt íþróttafólk hefur notað kreatín á síðasta áratug, og það er næstum ekkert sem bendir til þess að það geti verið skaðleg áhrif af skammtíma eða langtíma notkun þess. En hinsvegar vilja sumir “spekingar” halda því fram að langtíma kreatín neysla geti valdið lifrar og nýrnarvandamálum, þrátt fyrir að það séu ENGAR sannanir að kreatín geti valdið slíku vandamálum. Þvert á móti eru margar rannsóknir sem sýnt hafa fram á að neysla kreatíns sé örugg.

 

Kreatín fyrirbyggir krampa

Vísindalegar rannsóknir halda áfram að bægja niður slæmar sögusagnir um kreatín. Fáir hlutir fara meira í taugarnar á mér en ónákvæmar greinargerðir í fjölmiðlum, sérstaklega þegar það eru fréttir um fæðurbótarefni eins og kreatín.

 

Sjónvarpið, blaðagreinar og internetið innihalda oft “fréttir” varðandi kreatín. Oft er megnið af þessum upplýsingum ekki fengnar frá fyrstu hönd, þ.e.a.s. þær eru fengnar í gegnum milliliði- t.d frá næringarprófessorum eða frá fjölskyldulæknum. Þrátt fyrir að vera vel menntaðir þá eru þessir menn oftast langt frá fremstu víglínu í kreatín rannsóknum.

 

Casein Prótín

Kasein getur hjálpað að tímasetja prótein í gegnum meltingarveginn vegna þess að það hefur tilhneigingu til að mynda "hlaup" sem getur einnig verið ástæða fyrir því að íþróttafólk fær meiri "fyllingu" úr máltíð sem er rík af kasein heldur en mysu. Hægfara melting eykur upptöku á mörgum amínósýrum, peptíðum og heilum próteinum sem fara í gegnum meltingarveginn. Betri prótein upptaka auðveldar fólki að koma á móts við próteinþarfir þess.

 

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

AddThis Social Bookmark Button