Ég tók sem sagt þátt í Bootcamp Hellweekend sumarið 2007, kláraði það klárlega ;)
En ég var í þvílíkum vandræðum með krampa í öllum vöðvum og þol almennt, en ég hafði samt sem áður verið að lyfta vel fyrir helgina, samfleytt 4-5 sinnum í viku í a.m.k 4 mánuði og eitthvað lauslega á undan því.
Einnig æfði ég körfubolta 5 sinnum í viku þannig ég var í mjög góðu hlaupaformi.
Með æfingum var ég að taka glútamín, kreatín og prótín (en ekki alveg 2x líkamsþyngdina reyndar)
Mér var bent á að kreatínið hafði þessi áhrif á mig, þar sem þetta er auðvitað ekkert eðlileg æfing, þessi Hellweekend, var mér sagt að kreatínið hefur áhrif á vatnsmagnið í vöðvunum og því hef ég krampast hrikalega upp (mun meira en aðrir.. sérstaklega ef ég reyndi að teygja á t.d vinstri hálslið, þá krampaðist ég í þeim hægri..)
En nú stefni ég að því að gera enn betur og skráði mig í Hellweekend 2008 ( www.bootcamp.is )
Mér var bent á að kreatínið hafði þessi áhrif á mig, þar sem þetta er auðvitað ekkert eðlileg æfing, þessi Hellweekend, var mér sagt að kreatínið hefur áhrif á vatnsmagnið í vöðvunum og því hef ég krampast hrikalega upp (mun meira en aðrir.. sérstaklega ef ég reyndi að teygja á t.d vinstri hálslið, þá krampaðist ég í þeim hægri..)
En nú stefni ég að því að gera enn betur og skráði mig í Hellweekend 2008 ( www.bootcamp.is )
Hvernig er best að þjálfa sig fyrir Bootcamp-Hellweekend sem einkennist sem mest að vöðvaþoli að ég held og hvaða fæðubótaefni ætti ég að taka með því?
Og hvað er best að vera að borða þegar kemur að helginni góðu? Mikið af kolvetni t.d?
Sæll vertu.
Besta þjálfunin fyrir svona átök eins og Bootcamp - Hellweekend er mikil og góð þolþjálfun ásamt góðum slatta af styrktarþjálfun. Mikið og gott þol mun koma að góðum notum þarna þó þú megir ekki gleyma styrktarþjálfuninni sem er mjög mikilvæg.
Hlauptu mikið (bæði úti og á hlaupabretti) og reyndu að finna góðar brekkur þar sem þú ert að taka vel á því á hlaupunum. Þessi Hellweekend snýst mikið um úthald og þol því verður þú að byggja það vel upp með sem fjölbreytilegustum þolæfingum s.s hlaup, róður, tröppur, pallar, spinning, hjól, o.fl. Í sambandi við styrktaræfingarnar þá mundi ég einbeita mér að æfingum þar sem þú ert að nota eigin þyngd s.s í armbeygjum, upphífingum, dýfum, framstig og uppstig á pall.
Mig langar að leiðrétta misskilning sem oft heyrist í sambandi við vöðvakrampa og kreatín notkun. Heyrst hefur að kreatín getið valdið slæmum aukaverkunum, allt frá vægum(krampa) yfir í alvarlegri aukaverkanir(nýrnabilanir). En rannsóknir hafa ekki sýnt fram á þessar verkanir í heilbrigðum einstaklingum. Allar þær rannsóknir sem hafa verið gerðar sýna að kreatín veldur engum óæskilegum aukaverkunum.
Vöðvakrampi verður aðallega við skort á vatni og söltum (s.s natríum, kalíum og klóríð). Því er mikilvægt að þú sért að bæta fyrir vöðva- og steinefnatapið sem þú verður fyrir þegar þú svitnar mikið og tekur vel á því. Því mæli ég með því að þú drekkir vel af vatni og fáir nauðsynleg sölt þegar þú ert í Bootcamp eða ert að taka þátt í Hellweekend. Góður drykkur fyrir þig væri Iso-Drive frá EAS inniheldur öll nauðsynleg sölt fyrir líkamann, ásamt því að gefa þér nóg af kolvetnum sem eru bensín fyrir vöðvana.
Ég mæli með því að þú borðir sérstaklega mikið af kolvetnaríkum mat dagana fyrir s.s ávexti, hýðishrísgrjón, heilhveitipasta,gróft brauð og Myoplex Energy stangir frá EAS (http://www.eas.is/?item=34&v=item). Mass Factor frá EAS gæti nýst þér mjög vel þegar þú ert að undirbúa þig fyrir Hellweekend, í honum eru hágæða kolvetni og prótein ásamt nauðsynlegum vítamínum og steinefnum. Eftir erfiðar æfingar er líkaminn að öskra á góða næringu og væri ½ skammtur af Mass Factor góð leið til að gefa líkamanum það sem hann þarf.
Þú ert að fá mjög góða blöndu með því að taka kreatín, glútamín og próteinið. Það ætti að stuðla að hámarks árangri og koma byggja upp nauðsynlegan vöðvamassa fyrir átökin.
Ég vona að þetta komi að góðum notum.
Með bestu kveðju
Gunnar – Næringarfræðingur (M.Sc.) EAS