Markmið okkar er að vera fremstir í þekkingu þeirri sem aflað er með vísindarannsóknum á sviði næringarfræði. Við stefnum að því að nýta þá þekkingu til að framleiða árangursríkustu og öruggustu fæðubótarefnin fyrir fólk sem stundar íþróttir, líkamsrækt og lifir heilsusamlegu lífi.
Við einbeitum okkur að því að þróa skilning á fæðubótarefnum þessum og ýta undir ábyrga notkun á þeim með hjálp áætlunar sem byggir á þjálfun og heilbrigðum lífsvenjum. Þannig má ná fram betri árangri, bæði líkamlegum og andlegum hjá öllum þeim sem vilja gera sitt albesta og enn betur.
Framtíðarsýn okkar er að fá áorkað miklu meira en eingöng því að koma á fót fyrirtæki sem skilar hagnaði. Hún snýst um að skapa lífsstíl. Við leitumst við að ná til fólks alls staðar að úr þjóðfélaginu, mennta það, virkja og gera því kleikft að tileinka sér lífssýn EAS, en hún er að heilbrigð sál búi í sterkum og hraustum líkama.
Þessi metnaðarfulla og ákafa framtíðarsýn er bæði hjartað og sálin í liðsveit EAS. Sú liðsveit vinnur einhuga saman, full áræðni og áhuga gagnvart alþjóðlegum verkefnum sínum.
Allir liðsmenn hennar eru sem einn hugur og eiga sér eitt sameiginlegt markmið - ekki að vera þau bestu í deildinni, heldur skipa úrvalsdeildina.
Stefnumarkmið
Vöruflokkar
Áhugaverðar vörur
|
kr. 3.396
kr. 3.056 Afsláttur: 10.00% |
|
kr. 4.990
|
Nýlega skoðaðar vörur
|
kr. 3.990
|




