Skilmálar EAS.is / Artasan ehf
1) Með því að opna vefsvæðið samþykkir þú skilmála þessa eins og þeir eru fram komnir, án allra breytinga.
2) Vefsvæðið er í eigu Artasan ehf. Artasan ehf ber ábyrgð á öllu efni á vefsvæðinu, þ.m.t. eru upplýsingar um vörur og þjónustu.
3) Artasan ehf áskilur sér rétt til endurbóta og/eða breytinga á upplýsingum um vörur, þjónustu, verð, og annað efni á vefsvæðinu án fyrirvara, þ.m.t. eru breytingar á skilmálum þessum. Við mælum því með að skilmálar þessir séu lesnir reglulega.
4) Artasan ehf tekur öryggi persónuupplýsinga alvarlega. Ef þú skráir þig fyrir kynningu á vöru, á póstlista, tekur þátt í keppni eða nýtir þér ákveðna þjónustu á vefsvæðinu þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Persónuupplýsingar verða ekki framseldar þriðja aðila eða notaðar í öðrum tilgangi án samþykkis hlutaðeiganda.
5) Artasan ehf eignast sjálfkrafa allt efni, athugasemdir, uppástungur og spurningar sem sendar eru í gegnum vefsvæðið eða í tölvupósti til Artasan ehf. Upplýsingar þessar kunna að verða notaðar við frekari þróun vefsvæðisins eða til markaðsstarfs.
6) Verð er gefið upp í ISK, virðisaukaskattur er innifalinn.
7) Artasan ehf ábyrgist ekki áreiðanleika upplýsinga á vefsvæðinu. Upplýsingar um vörur og þjónustu sem og annað efni kann að vera úrelt. Artasan ehf er ekki skuldbundið til að uppfæra upplýsingar á vefsvæðinu. Artasan ehf afsalar sér ábyrgð á villum eða rangfærslum á vefsvæðinu, svo sem uppseldum vörum, sem kynnu að baka Artasan ehf skaðabótaskyldu. Allar ákvarðanir sem notandi tekur og byggðar eru á upplýsingum af vefsvæðinu eru á ábyrgð notandans.
8) Artasan ehf ábyrgist ekki að ákveðnir hlutar vefsvæðisins, eða þjónusta sem í gegnum það fæst séu ávallt tiltækir, öruggir, án villna, að villur og/eða gallar verði lagfærðir eða að vefsvæðið eða netþjóninn sem það er hýst á sé laust/laus við tölvuveirur og annað skaðlegt efni.
9) Artasan ehf er ekki skaðabótaskylt og ber ekki ábyrgð á hvers kyns tjóni, gagnatapi og hugsanlegu veirusmiti sem tölvur eða annar búnaður kann að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu, þ.m.t. er niðurhal á kyrrmyndum, hugbúnaði og öðru efni. Notandi ber allan kostnað vegna viðgerða á búnaði og/eða gagnatapi sem hlýst af notkun vefsvæðisins.
10) Artasan ehf heimilar notandanum að hafa persónuleg not af vefsvæðinu og öllu því efni sem þar er að finna. Notandanum er heimilt að afrita gögn á rafrænan hátt af vefsvæðinu til ofangreindra nota, svo framanlega sem allar upplýsingar um höfundarrétt, þar sem þær eru til staðar, séu óbreyttar.
11) Innihald vefsvæðisins, þar með talið hönnun þess og útlit, telst eign Artasan ehf og/eða samstarfsaðila og er verndað af höfundarréttar- og öðrum lögum.
12) Þar sem lög koma í veg fyrir afsal ábyrgðar eins og lýst er að ofan áskilur Artasan ehf sér rétt til að takmarka ábyrgð sína eins mikið og leyfilegt er þannig að þau rúmist innan ramma laganna.
13) Óheimilt er að villa á sér heimildir í notendaskráningu og samskiptum á vefnum t.d. þegar sendur er tölvupóstur eða skrifað á umræðuvefinn.
14) Óheimilt er að nota vefinn til að dreifa tölvuveirum eða öðru sem kann að valda skaða hjá viðtakanda.
15) Notendum er skylt að hafa notkun í samræmi við góða siði um umgengnisreglur sem almennt eru viðurkenndar á Netinu. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur spjallsins eru ekki liðnar. Stjórnendur spjallsins og stjórnendur Artasan ehf meta hverju sinni hvort eyða skuli út þráðum notenda eða banna notendur.
16) Ekki er heimilt að nota aðgang annarra. Óheimilt er að lána öðrum óviðkomandi lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum.
17) Óheimilt er að trufla samskipti eða valda óeðlilegu álagi á tengingum annarra.
18) Notkun umræðuvefsins er á ábyrgð notenda sjálfra.
19) Óheimilt er að birta efni á umræðuvefnum sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi, þar á meðal klám og ærumeiðandi efni.
20) Artasan ehf umræðuvefurinn þjónar ekki tilgangi smáauglýsingavefs. Stjórnendur umræðuvefsins og stjórnendur Artasan ehf meta hverju sinni hvort texti sé auglýsing eða ekki. Allar auglýsingar eru fjarlægðar án fyrirvara.
21) Brot á þessum skilmálum geta valdið tafarlausu banni án fyrirvara.
22) Brot á þessum reglum getur flokkast undir misnotkun á þjónustu internetfyrirtækja. Skráður rétthafi tengingar telst ábyrgur fyrir því að reglum sé fylgt. Ef skilmálar internetfyrirtækja eru brotnir getur það valdið tafarlausri og fyrirvaralausri lokun á þjónustunni.




