| Fćđubótarefni - Góđ blanda fyrir börn? |
|
Sonur minn er 11 ára hann æfir kickbox og er mjög áhugasamur,er einhvert vit í að leifa honum að fá sér fæðubótarefni eftir æfingar? Ef svo er hvaða blöndu mælið þið með? Er kanski skyrdolla eftir æfingu hollust fyrir hann?
Ef sonur þinn er að finna til mikillar þreytu og nær ekki að uppfylla orkuþörf sína með hefðbundnu mataræði þá má hann alveg taka kolvetna/próteinblönduna Mass Factor strax að loknum æfingum að hámarki tvær til þrjár mæliskeiðar.
Það er ekkert í Mass Factor sem getur truflað vöxt hans og þroska þó við hvetjum nú börn og unglinga ekki til þess að neyta fæðubótarefna.
Skyr og einn ávöxtur að lokinni æfingu væri einnig góð blanda fyrir hann.
Með bestu kveðju, Gunnar. |


















