EAS

ÁSKORUN 2010

Vöruflokkar

HAUSTÁTAK

Spurning vikunnar
Rćktin - Ólétta og Líkami fyrir Lífiđ

Ég er að fara að taka þátt hja ykkur í Líkami fyrir Lífið og er samt að reyna að vera ólett. Fer þetta vel að æfa á fullu og reyna að vera ólett? Hvað má ég þa æfa mikið þegar ég verð ólett?
 
Til hamingju með þá ákvörðun að taka áskoruninni!!!

Þú mátt alveg æfa vel þó að þú sért að reyna að verða ólétt, hér er það næringin sem skiptir mestu máli. Borðaðu fjölbreytt, mikið af ávöxtum og grænmeti og einnig skaltu taka inn fólinsýru en það er mjög mikilvægt vítamín á meðgöngu og mánuðina fyrir þungun.
 
Þegar þér svo tekst að verða ólétt þá er mikilvægt að hlusta vel á líkamann sinn. Það er í raun ekkert því til fyrirstöðu að halda áfram eins og frá var horfið en þú skalt ræða þetta betur við ljósmóður þegar þar að kemur þar sem þú tekur ekki fram hversu mikið þú ætlir þér í raun að æfa.
Ekki er mælt með að prufa eitthvað nýtt í líkamsræktinni á meðgöngu heldur halda sig við það sem líkaminn er vanur. Meðgöngusund og meðgöngujóga er mjög gott og getur hjálpað þér á meðgöngunni og í fæðingunni.
 
Gangi þér allt í haginn og endilega hafðu samband aftur ef það er eitthvað fleira sem ég get aðstoðað þig með :)
 
Bkv. Svava



 

Karfa
Karfan er tóm

SPURÐU EAS

Sérfræðingar EAS svara spurningum um allt varðandi EAS fæðubótarefnin, heilsuræktina, næringuna og heilsuna.

Skoða svör / hafa samband við sérfræðing

 

Spurning dagsins:
Rćktin - Fitubrennsluáćtlun

HOLL NÆRING

Kalkúna samloka
Kalkúna samloka
Skrá Afskrá

 



Staðhæfingar um vörur á vefsíðunni hafa hvorki verið staðfestar af lyfjaeftirliti Bandaríkjanna né Íslands. 
Þessum vörum er ekki ætlað að greina, lækna eða hindra sjúkdóma af nokkru tagi.

 

 

EAS Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ, Sími +354 555-2866, Fax +354 565-2866

OPIРMÁNUDAGA TIL FIMMTUDAGA 12:00 - 17:00 og FÖSTUDAGA 12:00 - 16:00 Í SUMAR