EAS

ÁSKORUN 2010

Vöruflokkar

HAUSTÁTAK

Spurning vikunnar
Björk Varđardóttir í viđtali 2010

Í október 2008 var Björk Varðardóttir fitnesskeppandi í viðtali eftir að hún hreppti fimmta sætið í Norðurlandamóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna.
 
Við heyrðum nýlega aftur í Björk eftir að hún hreppti þriðja sætið í Bikarmóti IFBB í nóvember síðastliðinn og tókum hana á teppið.
 
Þú stefndir á verðlaunasæti fyrir þetta mót, hver var herslumunurinn þegar kom að æfingum og matarræði ólíkt fyrri undirbúning fyrir keppnir?
Þarna spilar æfingin mikið inn í, æfingin skapar meistarann en þú verður fyrst og fremst að hafa trú á því að þú getir þetta, ef maður trúir ekki á sjálfa/n sig hvernig í ósköpunum eiga þá aðrir að geta trúað á þig, að mörgu leyti er þetta mjög andlegt sport og slæmu dagarnir koma rétt eins og þeir góðu. Matarræðið er eitthvað sem þú verður að læra inn á, það er ástæða fyrir því af hverju það er ekki búið að gefa út bók „hvernig á að skera niður fyrir fitness“ það er hreinlega útaf því að það er enginn sem segir þó að ein aðferð virki fyrir mig að þá virkar það sama fyrir alla aðra, hérna er galdurinn að ná að hlusta á líkamann og spila með honum en ekki á móti honum. Ef eitthvað er þá jók ég kolvetnaneyslu og reyndi að leyfa líkamanum aðeins að giska, keyrði kolvetni oft upp 2 – 3 sinnum í sömu viku og var þá lægri í kolvetnum á móti aðra daga. Kolvetni eru ekki hættuleg, það er tegund kolvetna sem eru frekar varasamar!
 
Var hugurinn með öðru móti núna heldur en áður?
Þetta var hörð keppni, svakalega sterkir keppendur og auðvitað hefur ögrun mjög góð áhrif á mann.... að koma inn betri en ég var síðast var mitt mottó!
 
Hvað ráðleggur þú ungu kvenfólki sem vill keppa í fitness en hefur enga reynslu af því?
Leita til þeirra sem hafa reynslu og þekkingu sem þú treystir og ert til í að fara eftir í einu og öllu.... þetta geta verið dágóðar fórnir og lítið um afsakanir! 
 
Hvaða fæðubótarefni notaðir þú í undirbúningstímanum og hvernig leit matseðillinn út fyrir erfiðustu dagana?
Ég nota EAS vörurnar, Nitrix oxide booster, muscle armor notaði ég mikið í byrjun en skipti síðan yfir í hreint glutamine, 100% whey prótein er algjörlega ómissandi og svo CLA og brennslutöflurnar Thermo DynamX. Erfiðustu dagarnir geta líka verið háðir dagsforminu frekar en matseðlinum þann daginn.... en ég byrjaði flesta daga á morgunbrennslu, fæ mér þá alltaf hreint prótein fyrir brennslu og hafragraut eftir brennsluna og set prótein út á, millimáltíðirnar eru ekki hugsaðar sem full máltíð heldur eins til þess að fá nóg fram að næstu máltíð án þess að verða svöng eða of södd, fín lína þarna á milli en að öðru leyti var ég með þá reglu að ég eldaði allan minn mat sjálf til að vita hvernig það var eldað og best að ákvarða magnið þannig sjálfur.
 
Finnst þér betur staðið að málum í kringum Fitness á Íslandi heldur en áður?
Eru fjölmiðlar meira komnir inn í sportið?
Fjölmiðlar mættu nú alveg koma sterkari inn en við mundum bara græða á meiri umfjöllun um sportið en já umfjöllun hefur frekar aukist ef eitthvað er.
 
Hversu mikill tími sólarhringsins fer í það að vera keppniskona í Fitness?
Þú ert alltaf að undirbúa þig á einn eða annan hátt!
 
Nú hefur það gerst að nýliði hefur unnið Fitness í fyrsta skipti. Heldur þú að það séu almennt raunhæf markmið fyrir nýliða sem vilja keppa í Fitness?
Ef þú hefur trúna á sjálfri/sjálfum þér þá er frekar að aðrir hafi trú á þér! En sem keppandi horfir maður á alla andstæðinga á jöfnum grundvelli, ekki vanmeta þá.... Þó að það komi inn nýliði þá getur hann haft feikilega góðan íþróttagrunn og komið sterkur inn!
 
Hvernig skilgreinir þú öfgar í Fitness og hvar dregur þú línuna?
Öfgar í fitness er þegar þetta fer að bitna á heilsu þinni, hvort sem það er andlega eða líkamlega. Andlega hliðin er gríðarlega öflugt verkfæri sem verður að vera í lagi og oft helst þetta í hendur, ef andlega heilsan er ekki í lagi þá bitnar það oft á líkamlegu heilsunni. 
 
Hvernig er árinu skipt hjá þér sem keppniskona í íþróttum, hvenær er þjálfunartímabilið, hvíldartímabilið og hvenær hefst undirbúningstímabilið.
Ég reyni að hlusta á líkamann,getur verið mislangt á milli móta eins og núna þá leið ár á milli þess sem ég keppti og vil ég meina að það hafi hjálpað mér rosalega til að ná að bæta mig, æfingin skapar meistarann en hvíldin skapar heimsmeistarann! En ég hef reynt að miða við að taka 15 vikur í niðurskurð fyrir mót.
 
Hversu lengi ætlar þú að keppa í Fitness? Á meðan ég hef gaman af þessu
 
Stefnir þú á annarskonar mót í framtíðinni? Já það geri ég, draumurinn er að prófa fara erlendis á mót!

 

© Örvar Geir Friðriksson

© Björk Varðardóttir

Allur réttur áskilinn.



 

Karfa
Karfan er tóm

SPURÐU EAS

Sérfræðingar EAS svara spurningum um allt varðandi EAS fæðubótarefnin, heilsuræktina, næringuna og heilsuna.

Skoða svör / hafa samband við sérfræðing

 

Spurning dagsins:
Rćktin - Ţrekstiginn eđa útihlaup

HOLL NÆRING

Frönsk samloka m. dýfu
Frönsk samloka m. dýfu
Skrá Afskrá

 



Staðhæfingar um vörur á vefsíðunni hafa hvorki verið staðfestar af lyfjaeftirliti Bandaríkjanna né Íslands. 
Þessum vörum er ekki ætlað að greina, lækna eða hindra sjúkdóma af nokkru tagi.

 

 

EAS Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ, Sími +354 555-2866, Fax +354 565-2866

OPIРMÁNUDAGA TIL FIMMTUDAGA 12:00 - 17:00 og FÖSTUDAGA 12:00 - 16:00 Í SUMAR