|
Góðan daginn, mig langar að vita hvort þið getið hjálpað mér. Ég hef æft núna í 1,5 ár 3-5 sinnum í viku í hádeginu svona 30-40 mín í hvert skipti með upphitun, ég þarf að stækka brjóstkassa upphandleggi sem er megin atriðið og lækka fituprósentu sem er 14% ég passa mataræðið nokkuð vel og tek inn prótein 1-2x á dag hef gert núna í 1 mán, er eitthvað sem þið getið leiðbeint mér með t.d kreatín í staðin fyrir prótein og þá ætti ég að taka brennslutöflur og fl? Hvernig ætti ég t.d að setja saman æfingarnar hlaupa og lyfta eða bara annað hvort? Sæll og þakka þér kærlega fyrir fyrirspurnina. Til að stækka brjóstkassa og upphandleggi verður þú að vera duglegur að gera þungar styrktaræfingar á þessum svæðum. Að loknum styrktaræfingum er mikilvægt að neyta úrvals protein til að tryggja góða endurheimt og uppbyggingu vöðvamassa. Ég mæli hiklaust með 100% whey protein frá EAS strax eftir æfingar (ekki láta líða meira en 1 klst eftir æfingu þar til þú færð þér hágæða prótein). Kreatín er mjög öflugt til að auka vöðvastærð og styrk og þú ættir að taka það með whey próteininu. Phoshagen HP kreatínið frá EAS er mjög öflugt og mun hraðvirkara en hreint kreatín. Fitubrennslutöflur líkt og Thermo DynamX geta komið að gangi til að minnka fituprósentu ef þú ert ekki sáttur við hvernig fitubrennslan hefur gengið undanfarið ár. Þessar töflur gefa ”extra kick” í fitubrennsluna og hækka grunnbrennslu líkamans. Ef þú hefur einhverja hjarta- eða æðasjúkdóma ættir þú ekki að neyta þessara taflna þar sem þær innihalda mikið koffín. Til að fá sem mest upp úr vöðvauppbyggingu mundi ég ekki blanda saman lyftinga og brennsluæfingum. Taktu sér lyftinga og brennsluæfingar, ef þú kemur því ekki fyrir og þarft að taka þær báðar í einu mæli ég með brennslu eftir lyftingaræfingu. Með bestu kveðju og gangi þér vel. Gunnar Markússon, næringarfræðingur EAS. |