|
Mig langar að grennast, allavega minnka ummál. Er frekar mössuð að eðlisfari og mig langar að vera minni um mig. Er með tveggja ára barn og hef ekki náð almennilega af mér maganum eftir það, bætti reyndar líka á mig 30 kg á meðgöngu. Æfi mikið, er í bootcamp 3x í viku, kenni sjálf bootcamp og fitpilates, er með skokkhópa og ætti að vera mjög grönn! Borða hollt- reyni að halda mig við 1500 kkal á dag og reyni að sleppa sætindum allavega virka dagana. Er samt alger sætabrauðsfikill en sleppi því samt:) Er að fara að keppa og verð því að hámarka úthald og styrk en langar að gera það án þess að stækka! Er frekar mikið mössuð og er ein af þessum fáu stelpum sem stækka við æfingar! Mín spurning er hvort til eru góð fæðubótaefni sem ég gæti tekið sem myndi koma til móts við þessi markmið. Tek prótein af og til sem er svona carbsense prótein. Set það út á hafragraut og stundum í sjeik. Hvernig er glutamin eða betagen? Creatin? Langar rosalega að ná mér vel niður fyrir keppnina. Ég er sjálf lærður þjálfari og tel mig kunna margt um mataræðið og heilsu en virðist geta hjálpað öllum í kringum mig en ekki orðið sátt sjálf. Ákvað að athuga hvort þú gætir hjálpað mér. Takk fyrir fyrirspurnina. Já nú er stórt spurt. Fyrir það fyrsta þá finnst mér 1500 kkal á dag ótrúlega lítið miðað við hvað þú ert aktív. Orkuþörf þín er allavegana um 2200 kkal á dag! Ertu að borða 5-6 litlar máltíðir yfir daginn? Það er ein besta leiðin til að viðhalda brennslu og orku yfir daginn. Svo ég snúi mér að spurningunni þá gætu eftirfarandi fæðubótarefni hjálpað þér: Glútamín – 2x 4g á dag. Taktu einn skammt (1 tsk) strax eftir æfingar og svo annan skammt um kvöld. Glútamín stuðlar að vöðvauppbyggingu og kemur veg fyrir niðurbrot vöðva og stuðlar þannig að fitubrennslu. Auk þess styrkir glútamín ónæmiskerfið, sem veikist oft þegar æft er mikið. 100% mysuprótein (whey prótein) – 1 skammtur (20g) strax eftir æfingu. CLA – línólsýra sem stuðlar að fitubrennslu, Örvar losun fitu úr fitufrumum. Notist 3 x 2 töflur á dag með máltíðum – ekki örvandi efni í þessari fitubrennsluvöru. Thermo DynamX – fitubrennsluvara með örvandi efnum eins og t.d koffíni og rauðum pipar. Skammtur er 2x2 töflur á dag með amk glasi af vatni. Byrjaðu á 2x1 töflu á dag í nokkra daga. Taktu annan skammtinn fyrir æfingu og hinn skammtinn með máltið. Ekki neyta of seint að kvöldi. Kreatín vörur líkt og Betagen hjálpa til við að auka styrk og massa og þannig óbeint fitubrennslu, en ég tel ekki að þú hafir þörf fyrir kreatín vörur miðað við þín markmið. Mundu að borða reglulega litlar máltíðir – aldrei að láta líða meira en 3 klst milli máltíða. Með bestu kveðju, Gunnar |